Polar beer er elsta bjórvörumerkið á Íslandi. Um 1940 hóf Ölgerðin að brugga þennan merkilega bjór fyrir fyrst breska hermenn og svo þá bandarísku í seinni heimstyrjöldinni. Bjórinn mátti þó einungis afgreiða til hersins. Síðar meir fékkst bjórinn í Fríhöfninni en þá einungis seldur áhöfnum skipa og flugvéla sem máttu taka bjór með sér inn í landið – allt til ársins 1980.
Þeir sem komust yfir Polar bjór áttu því til að liggja á honum eins og ormar á gulli sem er ekki góð geymsluaðferð fyrir bjór.
Verslun
Ölgerðin
Heildverslun
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun